Færsluflokkur: Bloggar

Mogga sagt upp

Ég var að enda við að segja upp áskrift að Morgunblaðinu ,mér finnst þetta bara eins og blaut tuska framaní áskrifendur MBL.

Ef þetta er það sem þessi kvótakallar haldi að bjargi blaðinu þá taka þeir feil .

Meirihluti þjóðarinnar hlýtur að vera búin að fá nóg af Davíð .

Þetta var afleikur á þessum fjölmiðli.


Sýslumaðurinn í Reykjavík opinn á Laugardögum!

Maður getur ekki orða bundist yfir lögbanni Sýslumanns í Reykjavik .Við hvaða aðstæður fær maður þjónustu hjá því embætti á Laugardögum ?

Nú eiga stjórnarflokkarnir að afnema bankaleynd ,því í skjóli hennar hafa þessi glæpamenn sem kallaðir hafa verið útrásarvikningar sett okkur á hausinn,nú er mál að linni.

Ef að einhver vill vita um skuldastöðu á húsnæði fólks þá þarf það ekki annað að gera en að fá veðbókavottorð hjá þessu fína embætti Sýslumanni og þá  ríkir ekki leynd yfir því.

Jóhanna og Steingrímur ,burt með bankaleynd og það á sumarþingi.

 


Spennandi dagur að kveldi kominn.

Nú dagurinn byrjaði með því að maður hékk fyrir framan imbakassann og fylgdist með útsendingu frá Alþingi og það var eins og að fylgjast með hörku spennandi fótboltaleik ,en mitt lið voru Evrópusinnar og mitt lið vann ,enn ekki mátti miklu muna með þessa heimsku tillögu Sjálfstæðisflokksins með sína tvöföldu þjóðaratkvæðagreiðslu,ég vissi ekki að Sjálfstæðisflokkurinn væri svo hlynntur þjóðaratkvæðum.En ég verð að segja að afstaða Borgarhreyfingarinnar olli mér vonbrigðum ,en þeir en mér finnst Þeir vera að rugla saman málum ,það var ekki verið að greiða atkvæði um Iceslave,en ef það er eitthvað sem þeir vita en við ekki þá eiga þeir að segja það.

Nú og svo endaði kvöldið á hörku spennandi leik á KR vellinum og þar vann mitt lið líka flott hjá þeim ,góður og fallegur dagur að kveldi kominn áfram 'Island og KR.


Kann ekki að skammast sín

Það er ljóst að Jónas Jónsson fyrrum forstjóri FME.kann ekki að skammast sín það sýnir beiðni hans til alþyngis að Sigríður verði látin hætta við ransókn á bnkahruninu.Það er auðvita bagalegt þegar að fyrrum forstjóri hjá FME sem stóð sig engaveginn í starfi vilji hafa áhrif á það hverjir eru að skoða vinnubrögð hans .Þú átt að skammst þín og láta lítið fyrir þér fara ,það fer þér og þínum líkum best.

 


Ótrúleg viðbrögð lögreglu

Það er ótrúlegt að lögreglan fari ekki og sæki þessar stúlkur ,þó svo að stúlkan hafi ekki verið í standi til að kæra.Ef hún væri rænulaus væri þá ekkert gert í málinu.

Maður skilur oft ekki starfsaðferðir lögreglu.


mbl.is Fjölskyldan er í sjokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afleikur hjá IS

Það er ekki hægt að segja annað en það hafi verið afleikur hjá Ingibjörgu S. að vita ekki að hennar tími var kominn ,það er bara svo með þetta ágæta fólk sem gefur sig út í pólitík að það hangir þar eins og hundur á roði það vill bara ekki fara ,það er sama hvað þetta fólk er búið að klúðra hlutum.

Nei það hefði verið flott að losna við Ingibjörgu úr forustusætinu og fá þar einhvern sem kom ekki nálægt  þessu klúðri sem þjóðin situr í.Sagði ekki Össur að það væru forustufólk á færibandi er  ekki kominn tími til að hleypa  því að ?

 


Þeir eru samir við sig Framsókn

Þeir láta ekki að sér hæða í Framsókn,og hvernig dettur nokkru heilvitamanni að eiga allt sitt undir þessum gjörpilta og vonlausa flokk ég spyr bara? En það er til marks um gullfiskamynni þjóðarinnar að þeir fengu 17% í síðustu skoðanakönnun.Ég veit bara ekki hvað getur bjargað okkur.
mbl.is Ósætti um aðgerðirnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgvin maður af meiru

Ég segi bara takk við Björgvin að reka fjármálaeftirlitið ,vildi að hann hefði völd til að reka Seðlabankastjórana,en það er ekki svo gott og ekki hefur Geir uppburði í sér til að gera það.

Björgvin hefði kannski átt að vera búinn að þessu fyrr en hans tími á örugglega eftir að koma,en svo kemur þetta formanni Samfylkingarinnar á óvart ,mér finnst það segja meir um tilfinningu hennar fyrir pólitíkinni hér heima ,það er eitthvað sambandsleysi hjá henni .

 


Nyja forystu hjá Samfylkingunni

Nú er formaður Samfylkingarinnar komin heim og vona að hún nái heilsu sem fyrst,en ég hef þá skoðun að það sé rétti tíminn fyrir hana að stíga niður og við finnum annan foringja.Því Samfylkingin þarf á foringja að halda sem er heilsuhraustur og ekki mun það skemma að hann sé yngri og hafi jafnvel ekki setið á þingi áður .Og svo finnst mér að formaður flokks eigi ekki að láta setja sig í útlegð eins og Sjálfstæðisflokkurinn gerir alltaf við samstarfsflokkinn,en klókt er það.

 

 

 


Burt með Dabbakúta

Heill þér 'Agúst varaformaður að þora að segja það hreint út að það þurfi að reka bankastjórana undir Svörtuloftum.Menn hafa verið reknir fyrir minni sakir en það sem þessir  Dabbakútar eru búnir að afreka.Nú þarf nýjan mann þar og sá fær sko verkefni, að byggja upp eftir að þessi hryðjuverkamaður er búinn að leika lausum hala hér í þjóðfélaginu verður ekkert smá verk.

Næsta síða »

Um bloggið

Hitt og Þetta

Höfundur

Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband